Því að fólk tekur því einfaldlega illa að það sé verið að breyta, þetta gerist í hvert einasta skipti sem að huga er breytt, ég er farinn að venjast því og ráðlegg þér að gera það sama, nöldrið mun fara eftir 1 viku.
Mínar hugmyndir í “hugmyndir” á gömlu forsíðunni fengu alltaf mótmæli af því að fólk þoldi ekki breytingar. Pældu bara í því ef allar mínar hugmyndir væru samþykktar þá væru bara allir sem þola ekki breytingar farnir að mótmæla líka og vera ósáttari en þau eru núna.
En ef það er hægt að venja fólk á nýja hluti hér þá hefði alveg verið eins hægt að samþykkja mínar vonlausu hugmyndir hehehe t.d….já þið vitið alveg hvað ég ætla að fara að nefna hér næst.
Þínum hugmyndum var ekki hafnað útaf “breytingunum”.
T.d. með edit-takkann (DON'T!) Honum var hafnað vegna þess að spammarar og aðrir “grínistar” myndu breyta korkunum sínum þegar x-margir væru búnir að svara. Misnota hann, semsagt.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..