Jæja kæru hugarar. Rétt í þessu fékk ég sms sem er svohljóðandi:

“Thank you for subscribing to Irreal Dating service. Your phone will be charged $2.00 per day until you unregister ONLINE at www.irrealhost.com - Enjoy!

Auðvitað skráði ég mig aldrei á þetta irreal dating, og þess vegna varð ég frekar pirruð þegar ég fékk þetta sms. Fór náttúrulega strax á þessa síðu, og sá um leið að hún var e-ð grunsamleg. Svona af forvitni fór ég í ”unregister your mobile“ en að sjálfsögðu ætlaði ég aldrei að klára ferlið, heldur bara kíkja hvað þyrfti að gera. Og þar var einungis beðið um símanúmerið, og sýnd skýringarmynd af því hvað ætti að gera næst. Sem sagt setja í gang program sem myndi koma upp. Skýringarmyndin er nú frekar blurry svo mér datt ekki í hug að setja þetta ferli af stað.

”When the program starts, please press the run button…“ Hver fellur fyrir þessu??
Þið getið séð þetta á www.irrealhost.com

Ég veit að þetta er vírus or some… en málið er bara, verð ég rukkuð um þennan pening? Því það er ekki séns að ég falli fyrir þessari brellu þeirra og ”unregister my mobile."

Hefur e-r heyrt um þetta? Google skilar ekkert mörgum niðurstöðum um þetta.

Kv. Werz sem ætlaði að sofa út en fékk grunsamlegt sms kl 9 um morgunin og hefur ekki getað sofnað síðan.
“Imagination is the only weapon in the war against reality.”