Notar einhver ykkar explorer 7 beta 2?

En sjálfur mæli ég ekki með því en blogcentral og aðrar síður verða hægvirkar og svo er frekar ömurlegt að maður getur ekki kíkt á póstinn með þessu drasli og svo eru nokkrar bloggsíður líka hægvirkar með nýja Explorer 7 beta 2. Ég ákvað að henda þessu explorer eftir að ég prófaði það en eins og ég sagði að ofan þá er þessi nýja uppfærsla frekar léleg og því nota ég ennþá explorer 6. Ef þeir geta ekki gert þetta betur hjá Microsoft þá ætla ég ekki að fá mér explorer 7 í framtíðinni.

En mig langar endilega að vita ykkar álit sem hafa prufað hana og athuga um leið hvort þið mælið með þessu vafra?