Ég er hjá símanum og mig langar að skrá símavin. Ég er búin að leita úti um allt á siminn.is, ég finn margar auglýsingar um þetta og líka upplýsingar um það hvað þetta gerir fyrir mann, en af hverju stendur ekki hvar á að skrá númerið!? Það væri alveg hægt að láta það fylgja með auglýsingunni, lítið gagn í auglýsingu ef maður veit ekki hvar maður getur fengið hlutinn …

Allavega veit einhver hvar þetta er? Ég hef gert þetta áður en þá var þetta nýtt og á forsíðunni.

Svo langar mig að nöldra smá yfir því að siminn.is er óþægilegasta, flóknasta og leiðinlegasta síðan á netinu!! :@