Ég er að leita að nafninu af gömlum unglingaframhaldsþætti sem voru eitt sinn sýndir á stöð 2 þegar þeir voru að byrja.
Ég geri mig fulla grein fyrir því að mörg ykkar voru ekki fædd þegar þessir þættir voru sýndir en ég vona samt að gömlu hugararnir hér muni eftir þessum þáttum.

En í þessum unglinga framhaldsþætti þá var þar ung stúlka sem gat alltaf stoppað tímann með því að snerta fingurgómana af báðum höndum og ef mig minnir rétt átti hún pabba sem hún talaði í gegnum kristalkúlu.

Ef einhver man eftir þessum þáttum endilega komið með nafnið á því hér.