djöful hata ég slæma daga, bókstaflega hata hata hata slæma daga. svona daga þar sem akkúrat ekkert er að ganga hjá manni og manni langar helst að skríða ofan í holu og hverfa af yfirborði jarðar í svona viku og gera ekki neitt.

ætla allavega að deila með ykkur mínum heldur betur leiðinlega degi..

hann byrjaði á þjóðfélagsfræðiprófi, og svo fór ég heim og síðan átti ég tíma í klippingu niðrí mjódd.
og ég væntanlega ákvað að labba bara niðrí mjódd, vera heví sportleg og labba.
og ég lagði greinilega ekki nógu og snemma af stað þannig að ég þurfti svona eiginlega að skokka svonaa 1/3 úr leiðinni
jæja okey síðan fer ég í klippingu, og í fyrsta skipti á ævinni er ég sátt við litinn og toppinn.. og mér fannst hárið vera svona í það styðsta en jújú ég var alveg sátt..

okey síðan labba ég heim aftur, ætlaði að koma við hjá vinkonu minni en þá þurfti hún nottla að fara á æfingu og ég labbaði alla leiðina heim í einhverju rok helvíti þannig að hárið á mér krullaðist svakalega og varð ennþá styttra..
þannig að ég lít út eins og dökkhærða géllan í scooby doo, and trust me I do not want to look like her..

okey síðan kem ég heim í svona einn og hálfan tíma og þá tek ég strætó niðrí mjódd (nennti ekki að labba þetta allt aftur) því ég var að fara til tannlæknis
en guess what.. þá átti ég ekkert tíma hjá tannlækninum og konan gerði heví mikið mál úr því og fólkið í röðinni horfði á mig eins og ég væri eitthvað rugluð manneskja sem fyndist gaman hjá tannlækni og væri að koma sér til skemmtunar án þess að eiga tíma
svo konan gaf mér tíma í ágúst aftur og ég eikkað jájá vinan þannig að ég tek aftur strætó heim.

svo þegar ég var búin að borða ætlaði ég að hringja í manneskju sem ég hef ekki talað við geðveikt lengi
en jæja okey hann svaraði ekki og er ekki ennþá búnað hringja í mig til baka þannig að ja ef ég væri með engil og púka á öxlinni þá væri púkinn að segja mér: ,,gleymdu honum hann vill ekki tala við þig"
á meðan ég vil ekki trúa því
síðan ætlaði ég að leggja mig aðeins útaf ég var að deyja úr þreytu og þá hringir síminn endalaust og það var alltaf eitthvað fólk að spurja um mömmu, tilhvers í anskotanum er konan með gemsa!

og ja svo er ég að fara í munnlegt próf í spænsku sem ég kann btw ekki rassgat í :S og ég er svo ekki í stuði til að læra :@

en já ég er kannski bara að fara að byrja á túr, kannski þessvegna sem ég er pirruð =/

þó að ég hafi alveg upplifað ömurlegri daga þá langaði mig bara að deila þessu með ykkur..

kv. bollasúpa

somebody else had a bad day? :S