Sæl verið þið.

Mér leoðist svo innilega í kvöld að hafði hugsað mér að leigja spólu. Alltaf er það þannig að þegar ég loks sest fyrir framan sjónvarpið þá er ekkert áhorfsvert, kannski vegna þess að það er sunnudagur.

En alla vega, ég ætlaði að spyrja hvort þið hefðuð einhverjar góðar hugmyndir um spólu, einhverja ágæta skemmtun?
Ég vil samt útiloka hryllingsmyndir.

Ég er ekki með myndbönd mánaðarins svo ég spyr hvort þið getið mælt með einhverri nýrri og góðri.

E.s. Eru Myndbönd mánaðarins til á netinu?