Ég er að leita að forriti sem niðurhalar “átómatíst” eða sjálfkrafa í texta út lögum sem ég læt inní iTunes. Ég veit að þetta forrit er til fyrir mac tölvur en ég er með windows og hef ekki enn fundið þetta forrit. er ekki viss um að þetta sé forrit ég náði í eitthvað sem ég hélt að væri forritið og það var bara “one file” eða einn fæll. vinur minn sagði að það væri þá fyrir mac. þetta þarf samt ekkert að vera endilega bara fyrir iTunes, bara held eitthvað svona forrit sem addar textum laganna inní lyrics dálkinn þegar maður hægri smellir á lagið og gerir properties. ef þið vitið um eitthvað svona forrit og vitið hvernig ég á að láta þetta virka megið alveg gefa álit og deila því með öðrum og jafnframt mér.