ég var að enda við að sjá video á popp tíví við e-ð lag sem er tekið upp í miðri eyðimörk og er mestmegnis svarthvítt. þrír gaurar að spila og gítarleikarinn er með þetta fínasta mini-afro, sg rafmagnsgítar og marshall magnara fyrir aftan sig. þetta er all hroðalega gott retro rokk í anda cream, black keys og smá vottur af stoner áhrifum í gítarsoundinu.

ef einhver hefur hugmynd um hvað lagið heitir og hver flytur það þá væri ég verulega þakklátur.