Ég setti þetta líka inná spjallborð apple.is og /mac en ég fæ engin svör og það eru fleiri notendir á forsíðunni svo…

Jæja, þá er málið með vexti að allt í einu duttu öll lögin út af iPodinum. Þetta gerðist á fim. 30.mars þegar ég var að hlaða inn music. Öll lögin og videoin eru inná iTunes.

Ég get ekki connectað iPodinn minn við iTunes. Það kemur samt svona “do not disconnect” en Það kemur ekki Removable Disk connected í My Computer.

Þegar ég plugga inn iPodinn þá kemur svona gluggi sem stendur Autoplay og vasaljós að lýsa á möppu.

Ég prófaði að downloada þessu en þegar ég opna það þá get ég ekki valið “Update” eða “Restore”, forritið er not responding.


Ég er búinn að prófa að gera System Restore, daginn 28.mars en það virkar ekkert. Það er ekkert að usb portinu því ég gat tengt myndavélina mína við tölvuna.

Veit einhver hvað gæti verið að ?