Setti þetta fyrst á vélbúnað en er ekkert að brillera þar svo…

Þannig er mál með vexti að það heyrist ekkert hljóð úr tölvunni minni. Ekkert, ekki einu sinni varúðarhljóð t.d. þegar maður ýtir á marga takka í einu heyrist einhvernveginn hljóð, það er ekki þannig einu sinni. Það er eins og það sé ekkert hljóðkort, nema það er þar í raun. Þegar ég fer í Sound and audiodevices þá er allt grátt eða ekki hægt að klikka á það. Getur einhver hjálpað mér??