Ég var að hlusta á Mín skoðun á X-FM í dag og um korter í eitt spiluðu þeir lag þar sem Jose Mourinho söng. Byrjaði á því að hella sér yfir og gera lítið úr leikmönnum og mikið úr sjálfum sér og svo söng hann. Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver vissi hvar hægt væri að nálgast lagið. Þeir kölluðu það víst Jose Mourinho lagið, strákarnir í Mín skoðun.