Ég var að spá hvort það væri ekki hægt að búa til nýjan BB-kóða til að auðvelda samskipti. Hugmyndin er sem sagt að ég geti skrifað eitthvað eins og [SK] og bara smellt á áfram, þá myndi [SK] breytast sjálfkrafa í eitthvert skítkastanna sem væru geymd í gagnagrunni og væru valinn algjörlega að handahófi. Þannig gætum við svarað korkum um allt að 90% hraðar (vísindalega reiknað út).

Dæmi um skítköst sem gætu verið í gagnagrunninum:

1. Hvað tók þig langan tíma að kreista þetta út úr heilasellunni?
2. Marr fucking heimskur!
3. Persónulega finnst mér sjálfum ég stundum verða ákveða svona fyrir mig.
4. Mammaín.
5. Það er svo augljóst að þú veist ekkert um hvað þú ert að tala að ég neita að eyða fleiri orðum í þig.
6. Vá, þarna fóru 20 sekúndur af ævi minni til spillis.
7. Get a life!

Svona mætti lengi telja og ég efast um að það sé flókið að búa til um 1000 svona skilaboð sem kæmu í handahófi í stað [SK]. Svo hvað segja menn um þessa tillögu? [SK]?