Ég er að spá, ég á ferkar nýlegan Toyota Avensis, magnaður bíll og allt það.

En málið er að innréttingin í honum er svolítið nýstárleg og útvarpið mun lengra og breiðara heldur en þessi hefðbundnu útvarpsæki. Þannig að ef að maður myndi fjarlægja útvarpið væri allt of stórt gat þannig að venjulegt tæki passar ekki inní. Ég var að heyra það að það væri hægt að kaupa einhverskonar plötu til þess að setja í ef maður tekur útvarpið úr og þá er pláss fyrir venjulegt útvarp. Fæ ég þetta í Toyota umboðinu bara eða bara út um allt? Set þetta bara sem spurningu hér því ég nenni ekki að hringja út um allt :)
Cinemeccanica