Mig langar bara að spyrja þig að svolitlu og vona að ég fái skjót og greinagóð svör.
Hvernig er það með nágrannaáhugamálið ? Því var lofað hérna fyrir ári síðan en enn hefur ekkert bólað á því. Af hverju er það ekki komið, kemur það kannski aldrei ? Ég vona að þú getir útskýrt þetta fyrir mér.
Og svo langar mig líka að vita hvort það er möguleiki að fá The Sims áhugamál hingað inn ? Ég er alveg handviss um að það myndi vera mjög virkt áhugamál, enda mjög vinsæll leikur.

Ef að þessi áhugamál eiga að koma hvenær koma þau þá nákvæmlega ?

Kveðja Alfons
-Song of carrot game-