Ég man einhverntímann í haust, sá ég einhverstaðar skilti um tónleika og þar stóð að eitt af böndunum sem myndu spila héti Days of our lives.
Ég fór ekki á þessa tónleika en núna fyrir alls ekki löngu var ég eitthvað að fletta í gegnum flytjendur á rokk.is og sá þetta nafn aftur og prófaði að hlusta á bæði lögin með þeim sem eru þarna. Það endaði með því að ég downloadaði báðum og er gjörsamlega með æði fyrir Audience of one. Ég gjörsamlega elska það, svo ég fór að reyna að grenslast fyrir um bandið og eina sem ég fann var myspace síða sem inniheldur ekki miklar upplýsingar.
Svo ég var að pæla er einhver hérna sem veit eitthvað um þá? Hvort ég geti fundið einhversstaðar texta, myndir eða eitthvað svipað?
And let me tell you, she is not the brightest bulb in the tanning bed!