Eftir að hafa gert dauðaleit á google þá neyðist ég til þess að spyrja ykkur hugara hvort þið væruð nokkuð svo heppin að eiga midi fæl að “i need your loving” Man nú ekki hver gerði upprunalegu útgáfuna en Baby D gerðu mikið vinsæla endurgerð árið 1993 og núna er Love Guru endurgerðin á Kiss fm.

Ástæðan fyrir því að mig vantar midi fælin er sú að ég er að endurgera eða “remixa” eina endurgerðina sem ég nefndi hérna fyrr og vantar midi fælinn til að stytta mér leið (plús það að ég gæti ekki skrifað eða lesið nótur til að bjarga lífi mínu)

Eruð þið svo nokkuð með þennan midi fæl ? :)

Sá sem nær að redda mér fær svo eintak af þessu remixi þegar ég er búinn með það :P