Ég lenti í allsvakalegu veseni núna áðan og þætti mjög gott ef einhver gæti hjálpað mér.

Vandinn lýsir sér þannig að ég get ekki hlustað á tónlist í Winamp né iTunes. Það koma alltaf gríðarlegur skruðningur og vesen. Ég get samt hlustað á lög í VLC. Ég vildi ég að ég gæti skilgreint vandann betur og sagt hvernig þetta gerðist, en ég veit ekkert meira, þetta varð bara svona eftir að ég hlustaði á lag af gerðinni .mid.

Veit einhver hvað er hægt að gera í þessum vanda mínum?