Mig langar í rc car, eða fjarstýrðan bíl. Ég vil ekki svona buggy bíl, hann þarf ekki að ganga fyrir bensíni, langar bara í flotta eftirlíkingu af alvöru bíl, sem er fallegur á að líta en er samt gaman að stýra.

Hvar get ég fengið þannig? Ég er búinn að tjékka nokkrar dótabúðir, fann ágæta kosti í Hagkaupum, og fer í Tómstundahúsið eða hvað sem það nú heitir, þetta í Nethyl, í vikunni. Vitið þið um fleiri svona tómstundabúðir með góðu úrvali af svona bílum?

Ekkert skítkast, fjarstýrðir bílar eru hið fínasta hobbý :}