Já, það sem ég var að velta fyrir mér hérnamegin, sem ég basla við að koma bendlinum í áttina að “Áfram” hnappinum, var hvort ekki væri hægt að fá einhversstaðar nýjan fartölvusníp?

Afsakið orðalagið, finnst þetta bara mest lýsandi nafn á þessum hlut.
Fyrir þá sem ekki vita er þetta s.s. tækni sem IBM (held ég) innleiddi allra fyrst.
Þetta er lítill plasthlutur, staðsettur í lyklaborðinu og virkar eins og joystick fyrir músarbendilinn..

Minn semsagt er lúinn og barinn. Orðinn næstum sléttur svo hann heldur engu gripi.

Veit einhver hvort hægt sé að kaupa nýjan sníp fyrir ThinkPad og hvar hann myndi þá fást?
Smoking is one of the leading causes of statistics…