Hvernig væri að taka aðeins á skítkösturunum hérna á huga. Banna bara alla sem eru með óþarfa dónaskap. Setja bara tilkynningu eitthvert og láta alla vita að ef að einhver er með óþarfa dónaskap þá verður viðkomandi bannaður. Þá geta stjórnendur áhugamálanna látið vefstjóra vita ef að þeir sjá einhvern vera að rífa kjaft að ástæðulausu og láta bara banna þetta fólk. Væru heldur ekkert að því að stjórnendur gætu bannað þá sem eru með skítkast eða Þá sem senda inn tilgangslausa korka til að fá stig.

Endilega segið ykkar álit á þessu.