Ég er að fara að setja upp blað/tímarit, í anda blaða eins og ‘Málið’ og ‘Sirkus’. Ég var að vellta því fyrir mér hvort að þið vissuð um einhver góð forrit eða einhverjar leiðir til að setja þetta upp á einfaldan og þæginlegan máta. Blaðið verður ekki gefið út á prenti heldur verður það bara á vefnum (semsagt veftímarit).

Svona til að segja aðeins frá þessu blaði, þá fjallar þetta um dans (samkvæmisdans) og geriði mér þann greiða að ekki vera að koma með einhver komment á að það eigi enginn eftir að lesa þetta, því það er ekki rétt (er með góðan lesendahóp á vefsíðunni minni (www.dansarinn.net))

En mér þætti vænt um ef þið gætuð bennt mér á einhverjar lausnir á að setja þetta upp.