Þegar ég las grein þína þar sem þú lýstir ánægju þinni við það að sjá líf fjara út fékk ég guðlegt heilaboð. Þú talar um að þig langi að drepa manneskju, en hafir ekki gert það. Ég sit hálfsofandi við drauma mína. Mig dreymir um að verða fyrir guðlegasta dauðdaga sem um getur. Mig dreymir um að yfirgefa þessa jörð með kvölum eins og enginn hefur fundið áður. Finna sársauka sem er svo hræðilegur að engin lifandi manneskja getur ímyndað sér að sé til. Ég trúi á myrkrarhöfðingjan Lúsífer og veit að hann heldur herberginu mínu niðri heitu, mjög heitu. Og heim get ég loksins farið ef þú gerir smá hlut fyrir mig. Við skulum kalla þetta ávinning tveggja aðila. Við fáum bæði það sem okkur dreymir um.

Beiðni mín er einföld elsku BongoKazmir.

Ég vil að þú drepir mig.