Það er kannski fulllangt gengið að búa til heilt áhugamál um Silvíu Nótt (Lesið korkinn fyrir neðan), en það væri kannski hægt að setja sérstakt pláss inná sjónvarpsefni fyrir korka um Silvíu Nótt. Eitthvað í líkingu við Allt um Friends inná Gamanþáttaáhugamálinu. Svo þegar SN hefur runnið sitt skeið og allir orðnir leiðir á að tala um hana er bara hægt að fjarlægja þetta.

Þar gætu aðdáendur og AntiSilvíuNóttarar sagt sínar skoðanir um þáttinn. Þá myndi forsíða Huga ekki fyllast af korkum um hana.

http://www.hugi.is/forsida/threads.php?page=view&contentId=2235995
Allt sagt með hálfri virðingu.