Nei þetta er ekki enn eitt nöldrið um hana Ágústu Evu Erlendsdóttur úr hljómsveitinni Ske sem leikur Silvíu Nótt í samnefndum þáttum.

En margir eru orðnir ansi þreyttir á hvað er mikið af korkum hérna um hana þannig hvernig væri þá að stofna Silvíu Nótt áhugamál síðu svo að aðdáendur hennar hvorts sem ykkur líkar við hana eða ekki geta farið á þessa síðu og spjallað um hana þar, svo við hin fáum frið fyrir þessum Silvíukorkum? Ég meina af hverju ekki?