hér má finna plötuna Out of exile með Audioslave í demó gæðum en er hún þess virði henda peningum í?

Þetta finnst mér t.d. vanta; plötur í heild sinni, hvort sem um niðurhal er að ræða eða áhlustun frá ákveðinni vefsíðu, þar sem platan getur verið í enn betri gæðum. Þannig vil ég geta dæmt um hvort platan sé þess virði til að kaupa.

Auðvitað eru hinar og þessar vefsíður eins og Amazon og fleiri sem bjóða uppá sýnishorn af lögum platna en mér finnst þau bara alltof stutt til að geta dæmt um hvort viðkomandi lag, hvað þá platan sé þess virði.

Miðað við hve langt tækninni hefur fleygt fram þá finnst mér jafn mikil synd hve illa hún er nýtt; t.d. væri gaman að geta keypt lög eða heilu plöturnar í gegnum gemsann þess vegna. Og áfram mætti telja..

Hvað finnst ykkur annars? :)
-axuz