Ein hugmynd sem ég fékk í kollinn tengd star wars. ég var ekkert að hika neitt svo ég fór og framkvæmdi hugmyndina.

Ég klæddi mig upp sem Obi Wan keonbi - setti á mig sverðið og allt, fór upp í smárabío (þetta var sama dag og frumsýningin) - sveiflaði sverðinu eitthvað í röðinni og fór með nokkrar línur eftir yoda.

Svo kom að mér að kaupa miða og ég sagði við mikla undrun fólks í kringum mig “einn miða á svamp sveinsson, takk”