Þetta grámyglulega útlit og notendaviðmót á Huga var ágætt einusinni en það er hægt að gera svo mun flottari vef í dag. Væri ljúft ef t.d. það yrðu tekin upp aðeins flóknari og flottari útlit fyrir áhugamálin. Svona annað en að breyta nokkrum litum og hafa lítinn haus.

Iconin eru líka ljót, no offense. Hvað með að nýta liti í iconin og þá kannski hafa icons fyrir áhugamálin sjálf í valmyndunum. Hefði haldið að Síminn hefði efni á að ráða auglýsingastofu í að lífga aðeins upp á útlitið á Huga.