Kvöldið..

Jæja, þannig er mál með vexti að ég mundi allt í einu eftir bílaleik sem ég spilaði stundum með vinum mínum hérna í “gamla daga” (svona ‘98-’99). Minnir að þetta hafi verið Nintendo leikur en er ekki alveg viss.
Leikurinn var bara svona venjulegur kappakstursleikur, nema maður var í pínulitlum bílum og brautin var inni í húsi, kannski á eldhúsborði eða eitthvað svoleiðis. Já, hljómar kannski fáránlega.. en svona man ég eftir þessu. :)

Ég er að verða vitlaus.. ég bara get ómögulega munað hvað leikurinn hét, og ég virðist vera eina sem man eftir honum!
Svo ég endurtek: Manstu eftir þessum leik? :)