Ég var að velta fyrir mér hvort hljómgrunnur sé fyrir “lögfræði áhugamáli” undir “vísindi og fræði”?

Ég er sjálfur nemandi við lagadeild Háskóla Íslands og þætti gaman að hafa þennan stað til að ræða málin á. Þó maður sé að ræða við samnemendur sína dags daglega hér í skólanum þá eru jú fleiri skólar með lagadeildir og alltaf gaman að heyra hvernig áherslumunur er milli skóla. Fyrir nú utan hversu mikið lögfræðin er í deiglunni þessa dagana og margar spurningar brenna á fjölda fólks.

Lögfræðingar, laganema og áhugafólk um lögfræði sameinist nú um að reyna að fá þetta skemmtilega efni hér inn á huga.

Saxi