Mig vantar hjálp við hvernig maður á að henda út MSN-vírusnum sem hefur tröllriðið öllum gelgjum undanfarið. Bróðir minn (eins vitlaus og hann getur verið) tók við þessu án þess að hugsa sig tvisvar um.

Ég er búinn að reyna að leita af svörum hér á Huga en finn ekkert. Minnir samt að ég hafi séð eitthvað um þetta hérna um daginn.

Einhver góð ráð til að henda honum út?