Ég kom með hugmynd fyrir svona 2 mánuðum síðan um að setja afmælislista á forsíðuna. Þar gætu staðið nöfn allra sem að eiga afmæli í dag og kanski aldurinn í sviga. Víst að það eru mjög margir skráðir á huga núna var ég búinn að reykna út að það gætu verið allt uppí 90 afmælisbörn á dag en þá gæti maður bara gert svona kassa þar sem að standa fyrstu 10 afmælisbörnin og svo er hægt að ýta á “sjá meira” til að sjá restina. Einhver kom með þá hugmynd um að láta fjölda stiga ráða röðinni á afmælisbörnunum sem gæti verið óréttlátt en í rauninni er það ekki svo slæm hugmynd því að það eru þeir sem eru með flest stig sem eru mest aktívir á þessari síðu og afhverju ætti þá var vera fullt af nöfnum alveg fremst á einhverjum hugurum sem eru með 2 stig og hafa komið inná huga eins og 3svar sinnum.
Mér finnst þessi hugmynd geðveik og vona að það verði gert eitthvað í henni. Ég veit líka um nokkrar síður sem eru með þetta kerfi og það er mjög skemmtilegt finnst mér.
Hver styður þetta??

Kv. StingerS