Hæ hæ.
Ég fékk iPod Photo 40GB í jólagjöf frá konunni og gæti varla verið ánægðari með hann. Það er samt fítus í menuinu sem að segir audiobooks og þar vill ég endilega koma þeim hljóðbókum sem ég á. Ég er ekki að fá Audiobooks upp í iTunes þannig að ég get ekki bætt því inn þar. Ástæðan fyrir þessu er að ég vill geta stillt á random á tónlistina mína og að hljóðbækurnar spilist ekki með þar (er frekar leiðinlegt að vera að hlusta á lag og fá síðan random kafla í e-h hljóðbók) ef einhver kann á svona græju og hvernig á að leysa þetta tiltekna vandamál þá væru upplýsingar um það vel þegnar.
Kveðja,
Vilhelm