Jæja, núna í gær gerði ég einhvern kork, sem yfir 15 manns eru búnir að svara, eins og er bíða mín 13 skilaboð, og nenni ég einfaldlega ekki að skoða þau öll. Hvernig væri þá að fá í skilaboðaskjóðuna fítus sem sýnir hvað korkurinn/greinin heitir sem hefur verið svarað, þ.e. þegar þessi skilaboð koma ‘Svar hefur borist’ væri fínt að fá nafnið á korkinum líka, þá gæti maður t.d. bara deletað öllum skilaboðunum sem tilheyra sama korkinum og einfaldlega farið bara og skoðað allan korkinn fyrir sig.