Ég vil nota tækifærið og þakka öllum aðstandenda huga.is gott starf.

Hvernig væri að bæta við í egóið möguleika á að sjá lista yfir pósta sem maður hefur sent, bæði greinar, korka, skoðanir og þráðapósta ásamt upplýsingum um hve margir hafa svarað þeim. Þetta myndi hjálpa manni mikið við að halda í við að svara ýmsum fyrirspurnum (og dónaskap) sem beint er til manns persónulega.
Það er svipaður fídus í póstunum á slashdot.org fyrir þá sem þekkja til þess.

Ef einhver hefur stungið uppá þessu áður þá er það hið besta mál.

Kveðja,
Sindri