Ég veit að það var sendur korkur um áhugamál fyrir þennan kork fyrir ekki svo löngu síðan, en þar sem allt stefnir í að Grand Theft Auto: San Andreas seljist í meira en 15 milljón eintökum http://www.washingtonpost.com/wp-dyn/articles/A61553-2004Oct25.html
(sem er meira en flestir leikir sem ég veit um) finnst mér að hann eigi skilið áhugamál. Hann kemur hingað á Frónið á næstkomandi Þriðjudag og býst ég við að hann eigi eftir að seljast eins og heitar lummur. Þó að það sé ekki online multiplayer (amk ekki í ps2 útgáfunni, hver veit með pc útgáfuna?) þá
held ég að hann ætti að geta haldið uppi ágætlega aktívu áhugamáli.