Þannig er mál með vexti að ég er með þráðlaust net og fæ ekki costaware til að virka. Ég er búinn að stilla það á wireless network og hef sett costaware upp á aðra tölvu á sama þráðlausa neti og það virkar alveg. Ég er búinn að prófa að uninstalla því og setja það upp aftur en það bara vill ekki virka. Eins leitaði ég á NetInternals síðunni að lausn en fann ekkert. Forritið virkar samt þegar ég tengi mig við routerinn með snúru.

Kannast einhver við þetta vandamál og hefur náð að leysa það?