Ég er í dálitlum vandræðum með músina mína. Ég er kannski að skrifa eitthvað eins og núna og allt í einu fer músin að hreyfast hægt upp eftir skjánum. Stundum líka ef ég er að færa músina upp, “stekkur” hún neðst á skjáinn.
Þetta er alveg ferlega skrýtið og eiginlega bara frekar óhugnalegt.
Vám, þetta er laser mús, ef það hjálpar eitthvað.
Hefur einhver annar lent í þessu, eða veit hvað á að gera?
Hjálp…