Ég er búinn að vera að leika mér með lítinn mæk sem ég á sem ætlaður er fyrir tölvu. Er búinn að vera að taka einhver frumsamin lög upp, spila á gítar og syngja. Ég hef fram að þessu bara notað Acid pro 2, sem er reyndar ekki ætlað fyrir svona lagað - og þessvegna var ég að spá hvort einhverjir hugararnir vissu um eitthvað sniðugt forrit sem ég gæti fengið frítt á netinu.