Hvað er að ské?

Afhverju er ekki áhugamál um Danstónlist hér á Huga.is? Danstónlist eins og: The Prodigy, Underworld, Chemical Brothers, Leftfield, BT, 808 State, Orbital, Fatboy Slim, Moby, Daft Punk, etc.!

Ég held að það eru MJÖG margir hér á Huga sem hlusta á eitthvað svipað sem ég nefndi.., listinn af góðum hljómsveitum sem gera Danstónlist er endalaus ..og ef eitthvað tónlistarform er ekki áhugamál, þá veit ég ekki hvað!

Ég er ekki með á nótunum hvernig þessu er stjórnað hér, hverjir ráða því hvað fer í áhugamál - hver gerir hvert áhugamál fyrir sig. EN! Þá finnst mér synd og skömm að það séu komin áhugamál um Rokk og Rapp, en ekki danstónlist!

- Eru ekki einhverjir sammála hér?

Danstónlist á Hugann, ekki spurning! - Gerum Hugann betri!

Kveðja
Arnie G.