Það voru einhverjir hérna að biðja um hjálp fyrir leikin crimson Rooms en það er hægt að fara í hann <a href="http://www.ebaumsworld.com/crimsonroom.html“>hér</a> þetta er bara fyrir fyrsta borð en það er ekki búið að gera hin ennþá.
Þetta er í röðinni sem ég gerði það:
1. Þú klikkar á ljósaperuna sem þú sérð.
2. Klikkar á gulu skálina á kommóðunni og tekur hringin úr henni.
3.Opnar kommóðurnar og tekur geisladiskahulstrin og minnisbókina.
4. Klikkar á gluggatjöldin og tekur lykilin í gluggakistunni.
5. Klikkar hægramegin á gluggatjöldin nokkrum sinnum þangað til lítill hlutur dettur úr þeim. Taktu hann upp. Það er hringur.
6. Lyftu upp koddanum og taktu lykilin þar.
7. Lyftu koddanum og klikkaðu á það svæði þar sem skuggin er ekki þar sem rúmgaflin og dýnan mætast og taktu málmhlutin sem er þar.
8. Farðu að auða veggnum og klikkaðu neðarlega í vinstra hornið og taktu batteríið sem er þar.
9. Veldu lyklana þar sem allt draslið sem þú hefur tekið upp er og opnaðu neðri skúffurnar á kommóðunni og taktu rauða boxið og power kapalin.
10. veldu græjurnar og í hlutalistanum veldu kapalin og klikkaðu á græjurnar. Þá kveikiru á þeim og opnar diskaspilaran og tekur lykilin sem er þar.
11. klikkaðu á svæðið undir kommóðunni og taktu kasettuna.
12. Veldu minnisblaðið í hlutalistanum og opnaðu nýjan explorerglugga og skrifaðu linkin sem stendur á miðanum. Þá kemur upp síða þar sem stendur ”TAKAGISM SINCE 1994“ legðu töluna 1994 á minnið því þú þarft að muna hana seinna.
13. Veldu rauða boxið í hlutalistanum og settu hringina 2 í holurnar og málmhlutin í eina gatið sem er þá eftir. Opnaðu boxið og settu batteríið í og kasettuna og spilaðu svo myndbandið.
14. Í endanum á myndbandinu sérðu svona lítin punkt blikka bil vinstri hendina á manninum frá þér séð. Settu músina yfir hann og bíddu þangað til myndbandið er búið og klikkaðu svo á staði þar sem punkturin er. Þar birtist lítill rammi á veggnum og klikkaðu á hann. Þar birtist peningaskápur og svæði þar sem tölur eiga að vera. Skrifaðu 1994 þar inn og veldu svo eina lykilin sem þú átt eftir og settu hann á litla hringin neðarlega á skápnum. Þá opnast skápurinn og taktu skrúfjárnið.
15. Farðu að hurðinni veldu skrúfjárnið og klikkaðu á hurðina. Þá kemuru svona í up close að hurðinni og klikkaðu svo á hurðarhúnin þannig að þú skrúfir hann úr. Klikkaðu svo á holuna og þá ertu búin með þennan fyrsta hluta af leiknum Crimson Rooms.

ATH ég hafði ekkert að gera á föstudagskvöldi og tók mér þannig tíma til að skrifa þetta. Það er kannski ekki mjög auðvelt að skilja þetta en það verður bara að hafa það.<br><br>Kv. Huglion
<a href=”http://www.hl-2.tk“>www.hl-2.tk</a> / <a href=”http://www.grimsi.tk">www.grimsi.tk</a