Daginn,

Ég er með vírusinn W32.Welchia.B.Worm og hann bara vill ekki fara.
Ég er með Norton AntiVirus (held 2003) og það Update'ar sig sjálft reglulega, svo er ég með litla smá forritið FixWelch sem er removal tool sem mér var bennt á bæði af Norton og vini mínum, svo er ég með forritið Ad-aware 6.0 sem ég nota til að losna við Tracking Cookies og f.l.

Norton kemur alltaf öðruhverju með svona skilaboð á skjáinn sem segir mér að W32.Welchia.B.Worm sé í tölvuni minni og hann geti ekki gert við fælinn, þá íti ég á ok og þá kemur það sama nema núna stendur að “Access to the file has been denied” (eitthvað bull í þá áttina) og svo íti ég á ok aftur og þá kemur aftur að hún geti ekki gert við fælinn og svo kemur hún með enn og aftur að hún fái ekki aðgang að fælnum, mér dettur bara í hug að það séu 2 allveg eins vírusar í tölvuni.

Svo læt ég Norton leita en hann finnur ekkert, svo læt ég FixWelch leita og hann finnur heldur ekkert.

Svo líður ágætur tími sem tölvan lætur vel og eðlilega (nokkrir dagar) enn svo kemur bara allt í einu upp aftur að Norton hafi fundið vírusinn en geti ekki gert neitt, og þá fer tölvan að verða hæg og forrit að vera “Not Responding” og vesen.

Tölvan var góð og lét vel alla helgina en á föstudaginn lét ég Ad-aware leita og eyða öllum cookies af tölvuni.

Og já, þetta kemur bara þegar ég er nettengdur.

Getur einhver hjálpað mér vinsamlegast?