Þó svo að ég sé mjög svo á móti því að alltaf verið að væla um áhugamál á þessum hugmynda korki en þá er ég með smá hugmynd sem mætti alveg leggja í pott hérna á Huga…
Játningar, það væri ágætis korkur/áhugamál sem mætti skoða. Það gefur fólki á öllum aldri tækifæri á að koma einhverju á yfirborðið, hvort sem það er að að leita eftir “synda-aflausn” eða það þarf bara að koma einhverju á yfirborðið, sem það á erfitt með að segja nema undir einhverju svona “dulnefni” eða á grundvelli sem nánast enginn þekkir mann.
En ekki byrja að skamma mig með því að segja að það er til áhugamál sem heitir syndir, því ég veit að það er til en mér finnst að það vanti kork eða áhugamál sem er dýpra en það.
En ég vill benda á það að ég er ekki að stinga upp á þessu vegna þess að að mig langar að vera admin, eins og sumir sem leggja svona hugmyndir í pott, heldur vegna þess að mér finnst að þetta sé hlutur sem vantar eða mætti bæta hér á huga, og ég væri svo sem alveg sáttur ef áhugamálinu syndir væri breitt eða endurnefnt. En samt sem áður er þetta bara mín skoðun og endilega svarið og segið ykkar skoðun á þessu máli eða bara svona til að segja eitthvað sem vert er að skoða