Er einhver hérna sem veit hvort að það sé mögulega hægt að komast framhjá Copy Control á geisladisk? Ég var að kaupa mér Life for rent með Dido og ætlaði að setja hann inn í tölvuna hjá mér á mp3 formi en það virðist ekki vera hægt! Ég nota tölvuna mína mikið og vil frekar hafa diskinn á mp3 formi í henni svo ég geti hlustað á hann hvenær sem er :/ Þetta er súrt finnst mér.