Þar sem að allir eru að spurja um nöfn á lögum þá ætla ég að láta vaða og spurja um eitt lag sem er búið að pirra mig í hálft ár. Myndbandið við lagið kom oft á skjá einum í sumar og var tekið upp á einhverjum útitónleikum ég veit ekkert hvernig textinn var eða neitt þannig man bara að söngurinn í þessu lagi minnti mig mjög á Dave Mathews Band og söngvarinn var mjög ungur og lagið frekar rólegt. Veit að þetta eru ekki miklar upplýsingar en ef ykkur dettur e-ð hug endilega svarið þessum pósti þá … Takk fyrir !