Sæl
Er eins og margir aðrir að drukna í pósti sýktum þessum sobig, hef fengið rúmlega 500 e-mail í dag alls á annað þúsund stykki frá því að þetta byrjaði. Inn á milli eru bréf sem segja að þetta hafi fundist í pósti frá mér, þá til fólks sem ég kannast ekkert við! Nú er ég nokkuð viss að ég er ekki með þetta, uppfæri vírusvörnina daglega sem og skanna tölvuna.

Nú spyr ég, getur verið að maður sé með þetta án þess að vírusvörnin finni þetta (þó hún sé ný uppfærð)? Eða er maður að fá þetta vegna þess að ormurinn hefur einhverstaðar náð í netfangið hjá manni?

Hvað þarf maður að vera mikið brjálaður til þess að láta sér detta í hug að búa til svona??!!#!arg!

Kv.