Hvernig væri að hafa stigakerfi svipað og Newgrounds nota? (www.newgrounds.com)
Hver sem er sendir inn sín verk (flash myndbönd) og fólk gefur því einkunn eftir því hversu léleg/góð myndin er, þegar einkunnin er komin einhvað visst lágt þá eyðist þetta myndband sjálfkrafa(eða blammað eins og þeir á newgrounds kalla þetta), en þegar það eru X margir búnir að skoða það og það er yfir einhverri X einkunn, þá ‘bjargast’ myndin og verður látin í friði (verður aldrei blömmuð).
En til að komast hjá því að fólk lýti bara á meðaleinkunnina sem myndin er með og voti svo eftir því, þá sér maður ekki einkuninna fyrr en maður hefur sjálfur skoðað myndina og gefið einkunn.

Svo fær maður extra stig ef maður gefur góða einkunn og myndin bjargast, eða ef maður votar ílla og myndinni verður eytt.

Þannig að ef maður votar sanngjarnt, eins og meirihlutinn þá fær maður bónusstig.

Einnig er hægt að sjá í profile höfunda hversu margar flashmyndir eftir þá hafa bjargast/verið blammaðar :P
Svo er líka hægt að sjá þar hvort manneskjan hafi tekið þátt í að eyða/bjarga flashmynd. (Með því að taka þátt meina ég hvort manneskjan hafi votað lélegt á mynd sem var eytt, eða vel á mynd sem var bjargað.)

Ah, því fleiri stig sem fólk hefur, því meira gilda einkunnirnar þeirra.

Mig minnir að stigagjöfin sé einhvernvegin svona í aðalatriðum og mér finnst þetta sniðugt kerfi.
Með þessu væri hægt að losna við lélega korka/greinar og halda þeim góðu.
Væri ekki hægt að nota svipað kerfi fyrir greinar og/eða korka?
Aðeins fínpússað kannski þar sem þetta eru greinar en ekki flashmyndbönd.

Endilega leiðréttið mig ef þið vitið einhvað um þetta og sjáið einhverjar villur, eða bætið einhverju við.<br><br>&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;
&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;