Núna er alveg nóg komið! Það er stundum algjörlega óþolandi að fylgjast með korkunum hérna. Það mætti halda að <u>sumir</u> hérna beri enga virðingu fyrir öðrum. Það gilda hér reglur um að fólk eigi að haga sér eins og það myndi gera almennt út á götu.

Hér kom inn korkur sem kvartað var yfir notanda. Sú kvörtun var tekin til greina og viðkomandi notandi beðinn um að taka út undirskriftarlista. Þar með hefði kvörtunin átt að enda. Í kjölfarið af þessu spann korkurinn upp í eitthvað allt annað, þe. skítkast og leiðindi. Út frá þessum kork, komu síðan upp tveir aðrir sem hljómuðu einhvern vegin svona: “Banna þennan af því hann er vondur við hinn!”. Þetta er algjörlega fyrir neðan allar hellur!

Þetta er vefur til að fólk geti tjáð sínar skoðanir, gefið sitt álit á hlutum og síðast en ekki síst haft gaman af því að vera hér. Ég persónulega nenni ekki að stunda vef þar sem pissað er á annað fólk fyrir sínar skoðanir og ég geri ráð fyrir því að megin þorri annarra notenda hérna séu sammála mér með það. Ef þú hefur eitthvað út á skoðun annarra að setja, gerðu það á kurteisan hátt og vinsamlegan hátt eða vinsamlegast haltu því fyrir sjálfa(n) þig.

Ég vil einnig taka fram að undirskriftir eru <b>EKKI</b> ætlaðar til söfnunar undirskrifta fyrir áhugamál. Þeir sem óhlýðnast þessu verða varaðir við og ef engin breyting verður verður viðkomandi <b>bannaður</b>.

kveðja,
Aquatopia<br><br><a href="http://www.hugi.is">Hugi.is</a