Hér eru mörg skemmtileg tónlistaráhugamál en það vantar áhugamál um heimstónlist hérna svo þetta verði frábært! Heimstónlistaráhugamál sameinar svo margt og myndi bæta ótal hljóðheimum við huga í einu. Ég veit ég myndi stunda þetta áhugamál og ég gæti líka sent greinar inn á heimstónlistaráhugamálið og spennandi tengla. Það er ábyggilega nóg af fólki hér sem er hrifið af, eða forvitið um, eitthvað af því sem kallast heimstónlist og fólki sem væri til í að tjá sig um heimstónlist.

Er einhver músíkölsk sál hérna sem styður heimstónlist?