Ég kom heim úr vinnu og talvan var búin að vera í gangi í meira en 8tíma og hún var frosin, ég gat ekkert gert ekki einu sinni farið í start og gert restart, ég slökkti á henni og startaði henni aftur og tékkaði á hitanum á örgjafanum og hann var um 71gráður. Þanng að hún var í gangi í meira en 8tíma og verið í 70-80gráðum allan tíman er ekki möguleiki að einhvað hafi skemmst. Ég fór með hana í viðgerð hjá tölvulistanum(enda í ábyrð hjá þeim)og viftan í spennugjafanum var ónýt og þeir settu nýjan spennugjafa í hana en tékkuð ekkert á hvort einhvað hafi skemmst. Núna frís hún af og til og er hægari núna eftir að hún ofhitnaði . Örgjafinn er XP2000 og ég hef heyrt að þeir þoli ekki hita yfir 70gráðum. Hvað haldi þið sem vitið einhvað um tölvur.